Vil þakka fyrir frábærar umræður hér á hugi.is um Weimaraner.Það er ljóst að framtíð Weimaraner hunda er mun bjartari hér á landi en mig grunaði og áhugi á þessum hundum virðist sem betur fer enn vera til staðar.

Vil sérstaklega þakka aðstandendum Weimaranerklúbbsins (þessum nýstofnaða klúbbi) gott starf.

Áhugasamir um Weimaraner kíki á www.simnet.is/phillips

Spurning hvort að Weimaranerklúbburinn geti ekki sett upp spjallrás á síðunni sinni þar sem Weimaraner eigendur um allt land geta haldið umræðu um Weimaraner og allt sem þeim tengist sín á milli. Væri t.d. hægt að byrja bara með gestabók á síðunni???

Endilega haldið umræðum áfram hér á hugi.is um þessa frábæru hunda þangað til.

Ég vil líka hvetja alla sem eiga Weimaraner (bæði ættbókarfærða og þá sem ekki eru ættbókarfærðir) að hafa samband við Weimaranerklúbbinn og láta vita af sér svo hægt sé að halda skrá yfir sem flesta Weimaraner hér á landi.