Ég lifi varla lengur en 15 ár.Mér líður illa án þín. Hugleiddu það áður en þú tekur mig að þér. Gefðu mér tíma og svigrúm til að skilja til hvers þú ætlast af mér.Hrós þitt og umbun er sem sólargeisli,refsing sem þungur dómur.Reiðstu ekki sakleysi mínu ég vill þér vel.Þú hefur þína atvinnu,átt þína vini og ánægjustundir.
Ég á aðeins þig.Talaðu við mig,enda þótt ég skilji ekki mál þitt,þá skil ég tón raddar þinnar.Augu mín og látbragð eru mín orð.
Áður enn þú slærð mig,bið ég þig að muna,að með beittum tönnum get ég kramið hönd þína,en ég mun aldrei beita þig ofbeldi.Ef þér finnst ég leiðilegur vegna annríkis þíns,mundu þá að stundum líður mér illa og verð pirraður,T.D. í sólarhita.Annastu mig þegar ég verð gamall.Án þín er ég hjálparvana.Deildu með mér gleði þinni og sorgum.Veittu mér hlutdeild í lífi þínu. ÉG ELSKA ÞIG.
“A dog is the only thing on earth that loves you more than he loves himself”