Þetta er það erfiðasta sem ég hef þurft að gera. Ég hef átt Kiuh mína í næstum 5 ár og hefur hún verið mín besta vinkona og mín dýmætasta eign. Nú hafa heimilis og fjölskyldu aðstæðurnar breyst svo mikið að ég neyðist til að finna henni annað heimili. Ég mun sakna hennar svo mikið og ég er búin að hugsa þetta lengi og þó það sé ekki best fyrir mig er þetta best fyrir hana að fá nýja eigendur sem geta veitt henni alla þá ást, athygli og hreyfingu sem henni vantar. Hún Kiah er 5. ára, svört labrador/scheffer tík. Hún er ljúfasti og blíðasti hundur í öllum heiminum. Hún er mjög hlýðin og vel upp alin. Hún er sérstaklega hrifinn af unglingum og er mjög barn og dýravæn. En umframm allt er hún svo ótrúlega kelin og ástrík. Ég er að vona að einhver góð sál með góða aðstöðu fyrir hund sjái þetta sem myndi vilja ættleiða litlu stelpuna mína. Ef svo er er hægt að senda mér skilaboð hér eða á kelikisa@hotmail.com eða hryngja í mig í síma 6591001.