Hvers vegna er verið að drepa öll þessi dýr? Fyndist þér þægilegt ef að einhver kæmi að þér og dræpi þig? Hundar eru lifandi og við verðum að virða það! Blindingjar þurfa hunda og af því alltaf er verið að lóga þessum krúttum þá gæti verið (þetta er hugdetta!) að þeir einfaldlega dæu út! Það er ekki sanngjarnt að alltaf sé verið að drepa þessi miskunarlausu dýr sem geta eiginlega ekkert varið sig. Þó að sumir hundar séu grimmir þá má reyna að temja þá. Sumir hundar eru meinlausari en húsfluga en aðrir bíta. Þeir bíta einfaldlega í vörn! Það sama myndir þú örugglega gera ef að einhver furðuskpna með sjö augu eitt eyra og tuttugu fætur kæmi að þér og myndi ætla að klappa þér!