Jólaleikur Jólaleikur Hvuttar.net er í fullum gangi. Endilega sendið inn vetrar/jólamyndir af hundunum ykkar og þið gætuð unnið. Valið verður um fjórar skemmtilegustu myndirnarnar að mati dómnefndar sem hljóta verðlaun.

Vegleg verðlaun
Í verðlaun er glæsilegur fatnaður fyrir ferfætlingana frá hundafot.com. Snyrting og/eða bað fyrir hundinn frá Hundasnyrtistofunni í Dugguvogi 2. Og Rúm fyrir hundinn frá Hundasnyrtisofunni. Það er því til mikils að vinna. Allar myndirnar sem berast í keppnina verða birtar á vefnum í lok keppni.

Sendið inn myndir á netfangið jolaleikur@hvuttar.net, og fram verður að koma nafn sendanda, nafn hunds/hunda og tölvupóstur viðkomanda.

Síðasti Skilafrestur er 17 desember.