Það er erfitt að skrifa minningargrein um þessa yndislegu litlu stúlku okkar, svo náin sem hún var okkur. Voffí lést hérna í fanginu á okkur mömmu, klukkan 3 mínútur í 12 á miðnætti þann 24 júlí 2004, eftir erfið veikindi.
Ég man þegar ég sótti þig upp á Hellisheiði í stórhríð vorið 2001, og þú sjarmeraðir pabba með einu augnatilliti. þú varst svo fríð að pabbi hafði aldrei séð fríðari voffa um sína daga. Þú varst ekki lengi að hertaka hjörtu okkar mömmu, og reyndar allra sem kynntust þér, því að það var ekki hægt, hversu lítið sem fólki var um hunda gefið, að líta fram hjá því hvað þú varst prúð og falleg. Og þegar mamma var búin að baða þig og greiða, hvað þú varst ánægð og stolt, enda leitun á jafn fallegum voffa. og þegar verslunarstjórinn móðgaði þig, þá þurfti mamma að taka völdin og draga pabba út úr búðinni áður en hann gerði allt vitlaust, og reyndar hefur hann ekki verslað þar síðan.
Það eru mörg tár sem falla við þessi skrif, en samt er minningin um þig eins dásamleg og hún getur mögulega orðið, því aldrei gerðir þú neitt af þér, og varst það mesta sólskinsbarn sem hægt var að hugsa sér. Það verður tómlegt að koma heim, og sjá ekki andlitið þitt í glugganum, þú varst svo blíð og geðgóð að það var mannbætandi að umgangast þig, og í gamni kallaði ég þig stundum geðlyfið mitt “Voffitrýn” því að það var ekki hægt að vera í fýlu nálægt þér.
Það er eitthvað meira en söknuður sem kemur upp þegar maður kveður þig Voffa mín, það er eins og þú hafir tekið með þér stóran part af manni sjálfum, því að tómarúmið er svo gapandi og stórt. Að þurfa að huga sér lífið án þín er nær óbærilegt, og aldrei kemur nokkur í þinn stað. En það eina sem ég get er að skrifa þessi fátæklegu kveðjuorð, og senda þér hlýjar óskir og þakklæti fyrir það sem þú gafst okkur á þínum 3 árum. Þú liggur hérna stutt frá þeim stað sem mamma og pabbi sofa, eða utan við svefnherbergisgluggann, í garðinum sem var ætlaður þér, og á hverju sumri ætlum við að gefa þér 3 falleg Hádegisblóm, eitt fyrir hvert ár sem þú áttir með okkur, helst bleik eða hvít eins og þú varst því að hvítari voffa hef ég ekki séð.
Þessi orð eru skrifuð af pabba fyrir hönd þeirra sem þú elskaðir og elskuðu þig
Pabbi, Mamma Hrefna, Beggi, Elva Sif , Kisa Mjöll og Muggur uppeldisbróðir
auk allra annarra vina þinna tvífættra og fjórfættra sem sakna þín svo mjög.
Hvíl í friði litla dúkkan okka