Ég er alveg rosalega reið!!!!

Ég var að lesa fréttir á mbl.is áðan og þar rakst ég á grein þar sem norskir friðagæslusinnar hafa verið að drepa hunda sér til gamans í Kosovo. Voru drápin tekin upp á video og því hefur síðan verið dreift á meðal annara norska friðagæsluliða og til almennings í gegnum tölvupóst. Myndbandið gengur undir nafninu “Hotdog”. Ég hef ekki séð myndbandið og langar ekki til að sjá það. Þetta er alveg ógeðslegt.

Á mbl.is segir að í einu atriði eru þeir að skjóta hund á löngu færi með riffli og síðan er annar friðagæsluliði sem tæmir skotin sín á hundinn sem engist af kvölum! Næsta atriði er alveg svo brutal! En þá er einn hundur bundinn upp við vegg og þeir skjóta á hann á stuttu færi! Síðan hlægja þeir bara af þessu og hrósa hvor öðrum fyrir hittni!!! Eru þeir ruglaðir! Hvernig er hægt að vera svona miskunnarlaus að drepa saklaus dýr og binda þau upp við vegg?! Þetta er bara hneykslanlegt og óásættanlegt! Dýraverndurnarsinnar ættu að kæra þessa hermenn sem voru að skjóta á vesalings hundana. Ég er ekkert smá hneyksluð og reið út þessa tilfinningalausu menn! Það er ekki bara ég sem er svona reið heldur hefur þetta hræðilega atvik valdið gífurlegri reið á meðal norska fólksins og ráðamanna þar. Þeir eru sér til skammar að gangast undir nafninu friðagæslusinni! Ég sem dýravinur og hef átt hunda allt mitt líf líð ekki svona fólk. Það á að refsa þeim.
I´m crazy in the coconut!!! (",)