Ég var að taka við 1 árs border/Íslending af vinkonu minni sem er alvarlega veik, en hann er ekki alveg að virka hjá mér því að hann eltir kisurnar, hænurnar, gæsirnar og hestana og maðurinn minn er kominn með hann á MOST WANTED listann.

Vinkona mín fékk hann hjá einhv dreng staula sem býr í húsinu á móti systir hennar en hann lét hundgreyjið dúsa úti í skotti á pínulitlum charade allann sólarhringinn í amk 4 mánuði, einn daginn þegar hún var í heimsókn hjá systir sinni ofbauð henni að hlusta á spangólin úr bílnum svo hún labbaði yfir og bað strákinn að gefa sér hundinn, jú sagði hann og hleypti út úr skottinu grindhoruðum drulluskítugum hundi sem er núna mánuði síðar hjá mér.

Svo að ég bið þig ef þú ert hjartastór og tímamikil(l) og hefur pláss fyrir glaðlegann, barngóðann border með hringaða rófu og spora og átt ekkert af undantöldum dýrategundum þá vinsamlegast sendið mér línu um sjálf ykkur svo að við getum fengið framtíðarheimili fyrir Vask (Ekki heppileg Jólagjöf)

Jólakveðjur Dalmadís