Bandarísk kona hefur látið breyta hundunum sínum, Rio og Riley, í inniskó. Deborah Sergesketter, frá Colarado, frétti af konu sem gæti spunnið inniskó úr dýrahárum og eyddi því heilu ári í að safna hárum af hundunum sínum. Deborah segir Rio og Riley, sem eru af Golden Retrievers kyni, ekki hafa hjálpað sér mikið við söfnunina “Þeir hjálpuðu mér nú ekki mjög mikið, en þeir mega eiga það að þeir eru miklu meira en bara gæludýr. Þeir voru miklir félagar mínir en nú eru þeir inniskór”. Rosemary Edmiston sá um skógerðina en hún þvoði, kembdi og spann úr hundahárunum. Hún blandaði ull við hundahárin en þannig helst lögun þeirra lengur og gerir þá þægilegri.