Líf mitt varir aðeins 10-15 ár og ég vil ekki vera alein/n lengi í einu.
Gefðu mér tíma til að skilja hvers þú ætlast af mér.
Athugaðu að ég legg allt mitt traust á þig og ég vil bara væntumþykju þína.
Vertu ekki reið/ur við mig lengi í einu. Lokaðu mig ekki inni í refsingarskini.
Þú hefur þína vinnu og þína vini, ég hef aðeins þig.
Talaðu við mig, jafnvel þó ég skilji ekki orð þín þá skil ég að rödd þín talar til mín.
Ég hef mjög gott minni og man eftir bæði góðri og slæmri framkomu.
Beittu mig ekki ofbeldi, mundu að ég get auðveldlega molað hönd þína en beiti ekki afli mínu.
Ef þú lítur á mig sem félaga og berð virðingu fyrir þörfum mínum þá verð ég besti
og traustasti vinur sem þú munt eignast.
Hugsaðu um mig þegar ég verð gömul/gamall og vertu alltaf hjá mér þegar ég
á erfitt.
Allt verður svo miklu auðvelara þegar ég hef þig hjá mér.