Heimasíða


Stjörnumerkin


Ýmislegt sniðugt


mömmur og pabbar


Aðeins fyrir þig..!


Nokkrir afmælisdagar


Allt mögulegt


Hvolpurinn þinn


Gullkorn


TÝR


GESTABÓK


Hvolpurinn þinn


Bréf frá hvolpi!


Ég er hvolpurinn þinn og ég mun elska þig alla leið til enda Veraldar.
En ef þú vildir vera svo væn (n) þá eru hér nokkur atriði sem ég bið þig
að hafa í huga.

Ég er hvolpur sem þýðir að gáfur mínar og hæfni til að læra eru hliðstæðar
því sem gerist hjá 8 mánaða gömlu barni. Ég er hvolpur og ég mun naga ALLT
sem ég get fest tennur á. Þannig kanna ég og læri hvernig allt er í heimi hér.
Jafnvel mannabörn skoða og kanna hluti með því að setja þá uppí sig. Það er undir
þér komið að vísa mér veginn: Hvað má naga og hvað ekki.

Ég er hvolpur. Blaðran mín þolir ekki við nema í eina til tvær klukkustundir.
Ég get ekki sagt til um það með neinum fyrirvara hvenær ég þarf að kúka. Ég get
ekki sagt til um hvenær ég þarf að pissa og kúka né haldið í mér fyrr en um 6
til 9 mánaða aldur. Ekki refsa mér ef þú sjálfur hefur ekki hleypt mér út í 3
tíma eða lengra. Þá er sökin þín. Það er ágætt að hafa hugfast að ég þarf að
gera þarfir mínar eftir: Matinn, svefninn, leikinn, drykkinn og að jafnaði á
2-3 tíma fresti.

Ef þú ætlast til þess að ég sofi um nætur er ekki ráðlegt að gefa mér að drekka
eftir klukkan átta. Rimlarúm mun hjálpa mér að verða húsvanur og forðar þér frá
að reiðast mér. Ég er hvolpur og slysin VERÐA. Vertu mér þolinmóður og með tímanum
læri ég.

Ég er hvolpur og þarf að leika. Ég hleyp um, elti ímynduð skrýmsli, elti fætur þína
og tær og “ræðst” á þig, elti fótbolta, önnur gæludýr eða lítil börn. Það er leikur–
það er þetta sem ég geri! Ekki reiðast mér eða ætlast til að ég sé hæglátur, rólegur
og sofi dagana langa. Ef hreifiþörf mín og orka er þér of erfið þá ættirðu kannski að
velta því fyrir þér að fá í þinn félagsskap einhvern eldri og rólegri. Leikur minn mun
reynast gagnlegur þegar fram líða stundir og notaðu ályktunarhæfni þína til að vísa mér
á viðeigandi leikföng og þóknanlega hreifingu á borð við eltibolta, bangsa og dúkkur og
leikföng sem góð eru til að naga. Ef ég glefsa of fast í þig þá talaðu við mig á “voffamáli”–
geltu hressilega á mig og ég skil að þar fór ég yfir strikið – þannig tjá hundar sig hver við
annan. Ef ég er of ákafur þá er ágætt ráð að leiða mig hjá sér í nokkrar mínútur eða setja mig
í rimlarúm um stundarsakir með leikfang við hæfi.

Ég er hvolpur. Vonandi ert þú ekki þeirrar gerðar sem öskrar, lemur eða sparkar í 6 mánaða börn.
Ekki gera það heldur við mig. Ég er mjög viðkvæmur og áhrifagjarn. Ef ég elst upp við barsmíðar
þá verð ég mjög hræddur og taugaveiklaður gagnvart öllu sem tengist barsmíðum. Hjálpaðu mér
frekar með hvatningu og innsæi. Ef ég til dæmis naga eitthvað sem ekki má naga segðu þá:
“Ekki naga!” og láttu mig fá eitthvað sem ég MÁ naga.

Reyndar væri betra ef þú hefðir allt sem ég ekki má snerta utan seilingar. Ég þekki ekki muninn
á nýju sokkunum þínum og þeim gömlu eða gömlu strigaskónum og þessum nýju dýru frá Nike.

Ég er hvolpur sem þýðir að ég er vera með tilfinningar og hvatir líkar þínum eigin – þó ýmsar séu
frábrugðnar. Ég er ekki mannvera í líki hunds og því síður tilfinningalaust vélmenni sem getur hlýðir
hverri þinni skipun. Ég VIL í alvöru þóknast þér, verða hluti af fjölskyldu þinni og lífi. Þú fékkst
þér mig (vonandi) vegna þess að þú vilt ástríkan félaga og vin. Þess vegna máttu ekki “planta” mér í
bakgarðinn þegar ég verð stærri og ekki dæma mig of hart heldur mótaðu mig með kærleika og leiðbeiningum
í það far fjölskyldumeðlims sem þú sérð fyrir þér.

Ég er hvolpur og er ekki fullkominn. Ég veit að þú ert ekki fullkominn heldur. En ég elska þig samt
skilyrðislaust. Gerðu það kynntu þér alla þætti sem lúta að þjálfun og hegðun hvolpa og leitaðu til
dýralæknis, bóka um umönnun hunda og leitaðu upplýsinga á Netinu. Kynntu þér þá tegund sem ég tilheyri
og “skapgerð” hunda þeirrar tegundar. Það mun veita þér innsýn í það hvers vegna ég geri allt þetta sem
ég geri. Kenndu mér með ástríki og þolinmæði hvernig rétt hegðun er og farðu með mig á fund annarra hunda
á t.d. hlýðninámskeið. Við munum skemmta okkur konunglega saman.

Ég er hvolpur og ég vil fyrst og fremst elska þig, vera með þér og þóknast þér á alla lund. Gerðu það gefðu
þér tíma til að skilja á hverju hegðun mín byggir. Við erum líkir, ég og þú, finnum báðir til hungurs, sársauka,
þorsta, óþæginda og ótta. En þó við séum líkir hvað þessi atriði varðar erum við einnig mjög ólíkrar gerðar og
verðum því að læra að skilja hvor annan, líkamstjáningu, vísbendingar og hljóð – þarfir og langanir.

Dag einn verð ég myndalegur hundur sem þú vonandi verður stoltur af og elskar eins mikið og ég þig.

Með ástarkveðju,

Þinn hvolpur

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ ~~~~~~~~~~~~~~~~

Bæn hundsins



Líf mitt varir aðeins 10-15 ár og ég vil ekki vera alein/n lengi í einu.
Gefðu mér tíma til að skilja hvers þú ætlast af mér.
Athugaðu að ég legg allt mitt traust á þig og ég vil bara væntumþykju þína.
Vertu ekki reið/ur við mig lengi í einu.
Lokaðu mig ekki inni í refsingarskyni.
Þú hefur þína vinnu og þína vini, ég hef aðeins þig.
Talaðu við mig, jafnvel þó ég skilji ekki orð þín þá skil ég að rödd þín talar til mín.
Ég hef mjög gott minni og man eftir bæði góðri og slæmri framkomu.
Beittu mig ekki ofbeldi, mundu að ég get auðveldlega molað hönd þína en beiti ekki afli mínu.
Ef þú lítur á mig sem félaga og berð virðingu fyrir þörfum mínum þá verð ég besti og traustasti vinur sem þú munt eignast.
Hugsaðu um mig þegar ég verð gömul/gamall og vertu alltaf hjá mér þegar ég á erfitt.
Allt verður svo miklu auðveldara þegar ég hef þig hjá mér.

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Það sem þú getur lært af hundinum þínum



1. Vertu alltaf hamingjusamur yfir að sjá þá sem þú elskar

2. Byrjaðu hvern dag og hvert viðfangsefni sem eitthvað nýtt og spennandi.

3. Leiktu þér við hvert tækifæri

4. Ekki vera hræddur/feiminn við að sýna gleði. Þegar að þú ert ánægð/ur eða hamingjusamur/söm, sýndu það!

5. Hvíldu þig nóg, leggðu þig af og til og teygðu þig vel áður en þú stendur upp.

6. Vertu trú/r sjálfum þér og öðrum.

7. Eigðu þér uppáhaldsleikfang og leiktu þér að því.

8. Ekki erfa leiðindi.

9. Þegar einhver á slæman dag knúsaðu hann.

10. Slepptu þér stundum og hlauptu út um allt.

11. Borðaðu hverja máltíð af áhuga of njóttu þess sem er í boði.

12. Klóraðu þér þegar að þér klæjar.

13. Verndaðu þá sem þú elskar.

14. Það skiptir engu máli hvernig þú lítur út, það er það sem er í hjartanu á þér

15. Njóttu hvers dags til fullnustu, þó að þú sért veik/ur.

16. Taktu við hrósi án þess að gefa afsakanir til baka .

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Hvernig taka á mynd af hvolpi



Taktu filmuna úr kassanum og settu í myndavélina.
Taktu filmukassann af hvolpinum og hentu honum í ruslið.
Taktu hvolpinn úr ruslafötunni og þurrkaðu kaffikorkinn af trýni hvolpsins.
Veldu hentugan Bakgrunn fyrir myndina.
Settu myndavélina á þrífót og stilltu hana.
Finndu hvolpinn og taktu skítuga sokkinn af honum.
Stilltu hvolpinum upp fyrir framan myndavélina.
Gleymdu uppstillingunni og skríddu á fjórum fótum á eftir hvolpinum með myndavélina.
Stilltu myndavélina með annarri hendi og reyndu að halda hvolpinum í fjarlægð með hinni.
Náðu í þurrku og þurrkaðu slefið af linsunni.
Taktu flasskubbinn af hvolpinum og hentu honum í ruslið.
Hentu kettinum út og sótthreinsaðu rispuna á trýni hvolpsins.
Settu tímaritin aftur upp á stofuborðið.
Reyndu að ná athygli hvolpsins með tístu leikfangi.
Settu gleraugun aftur upp og athugaðu hvort myndavélin skemmdist nokkuð.
Stökktu upp og gríptu í hvolpinn í tíma og æptu: “Nei, nei úti”.
Kallaðu á maka þinn til að þurrka upp óhreinindin
Blandaðu þér drykk.
Sestu í hægindastól með drykkinn og ákveddu að kenna hvolpinum að hlýða orðunum “sestu” og “kyrr” strax í fyrramálið
www.blog.central.is/unzatunnza