Hæ ágætu hundaunnendur/ eigendur.
Ég heiti Sesselja og er fædd 18 nóvember 2002,
ég er blanda af íslensku/labrador kyni ljós á litin,rosalega blíð og góð,mig vantar nýtt heimili vegna ofnæmis í fjölskyldunni.
Ég er ekki fullkomin frekar en aðrir hundar því að ég vil frekar pissa og kúka inni á mitt blað í stað þess að gera það úti, þess vegna vantar mig einhvern sem er þolinmóður og góður og getur kennt mér hið rétta.
Ef einhver sér sér fært að eiga mig og elska vinsamlegast hafið samband við
Þórunni Ósk í s:551-3842