bæn hundsins Ég lifi í um það bil 12 til 15 ár og mér líður illa þegar við erum ekki saman. Hugleiddu það áður en þú tekur mig að þér.
Gefðu mér tíma og skilrúm til þess að skilja til hvers þú ætlast af mér.
Taktu tillit til mín, þú ert mér allt.
Reiðstu mér ekki lengi í senn og lokaðu mig ekki inni í refsingarskyni.
Þú átt þína atvinnu, þínar ánægjustundir og þína vini. Ég á aðeins þig.
Talaðu við mig. Enda þótt ég skilji ekki mál þitt, þá heyri ég á rödd þinni þegar ég á hlut að máli.
Þú veist að ég gleymi aldrei hvernig með mig er farið.
Áður en þú slærð mig, bið ég þig að muna, að með beittum tönnum get ég kramið hönd þína, en ég mundi aldrei beita þig ofbeldi.
Annastu mig þegar ég verð gamall.
Vertu hjá mér í erfiðleikum, þá verða þeir léttbærir. Ég elska þig.