Ég er að hugsa um að fá mér hund og ég tók próf á netinu sem sagði mér til um það hvaða hundategundir henta mér best. Ég valdi svo úr nokkrar tegundir sem mig langar í en ég veit ekki hvort þær séu til á Íslandi þannig að mér datt í hug að spyrja ykkur, hundaáhugamenn hvort þið vitið hvort einhver af þessum tegundum sé til á Íslandi.
Tegundirnar eru:
Bichon/Yorkie,
Border Terrier,
Havanese(öðru nafni Havana Silk Dog),
Malti-Poo,
Schnoodle og
Shichon.
Ef þið vitið um einhverja af þessari tegund á Íslandi eða vitið um einhvern sem gæti hjálpað mér að finna þessar tegundir endilega látið mig vita. Með fyrirfram þökk,
garri318