Mig langar svo mikið í hund!! ég elska hunda og það hef ég alltaf gert, en þegar ég bjó heima hjá mömmu og pabba þá mátti ég aldrei eignast hund. Núna bý ég alein og ég er svo einmanna og það væri alveg æðislegt að eiga einhvern lítinn sætann hund til að kyssa og knúsa. Mig langar mest í PUG, þeir eru geðveikt sætir!!! Ég ætla að reyna að fá mér hund áður en árið er liðið. Helst þá einhvern fullorðinn hund vegna þess að ég get lítið verið heima hjá einhverjum hvolpi. Verst hvað er erfitt að eignast fullorðinn hund. Ég var næstum því búin að eignast einn um daginn í gegnum Gefins dálkinn í DV en þegar ég kom til að skoða hann þá var búið að gefa hann :( Ef þið vitið um einhvern æðislegan hund sem vantar nýtt heimili, endilega látið mig vita.

Kveðja PUG