Ég er stoltur chihuahua eigandi og mig langaði aðeins að skirfa um chihuahua hundana hér á huga. Í mörgum greinum hér er oft talað hvað þessi tiltekna tegund sé leiðinleg og og sumum bendt á að fá sér ekki þessa tegund. Mér finnst svo leiðinlegt að sjá skrifað hér aftur og aftur alla þessa neikvæðni um tjúana. Ég á eina tík sem er 6 mánaða núna og hún alveg hreint út sagt yndisleg. Hún umgengst 6 aðra hunda og einn kött á heimilum sínum og er mjög félagssækin í þau öll. Hún geltir mjög lítið yfirleitt bara sem undirtekt þegar hinir hundanir byrja meira heyrist ekki í henni. Hún elskar alla fjölskyldumeðlimi tvífætlur jafnt sem fjórfætlur. Og henni finnst fátt skemmtilegra en að stríða kettinum. Og stundum ráðast þær systur á köttinn saman. Það er svo algegnt að fólk haldi að þetta séu algjörar frekjurófur sem eru ekkert skemmtilegar. Ég var spurð að því um daginn hvenrig hunda ég ætti og þegar ég nefdi tjúann þá sagði konan “Oh er hann ekki geltinn og frekur?” ég átti ekki orð. Þegar ég sagði henni að tíkin mín væri algjör engill þá varð hún bara hissa og sagði að hún hefði heyrt svo leiðinlegt um þessa tegund. Ég vildi aðalega benda fólki á að hvaða tegund sem er grípur það hún kemst upp með. Byrjið snemma að taka fyrir gjamm og að ala hundana ykkar þá verða þeir ljúfir sem lömb. Líka chihuahua ;)