Misskilningur Þessa mynd rakst ég á um daginn þegar ég var að vafra á netinu, þar sem mér fanst hún skondin vistaði ég hana og ákvað að senda hana hingað inná áhugamálið: “/humor”.
Í fyrstu hafði ég lítinn sem engann texta meðfylgjandi myndinni þar sem það er svo óttalega tilgangslaust að benda á það augljósa. En það var ekki nógu gott.
Hér til að byrja með höfum við mynd af tveim strákum. Annar strákanna hefur komið höndum yfir erótískt blað og er eins og sjá má að sýna hinum drengnum blaðið.
Sá síðar nefndi virðist brugðið og spyr líklega hvort að það sé virkilega svona sem að börn verða til.
Þá kemur næst að því að drengurinn spyr móðir sína hvernig börn verða til, líklegast til að fá þessa hluti á hreint. Móðirin svarar líklega að það séu storkar sem að koma með börnin.
Æ, nei, nú virðist strákurinn misskilja þetta allt saman og telur mömmu sína sofa hjá storkum.
Síðasti ramminn sýnir hvernig aumingja drengurinn sér fyrir sér þennan myndarlega stork og móðir sína njóta ástar, líkt og í blaðinu sem að hann hafði séð fyrir stuttu.