Óboðinn gestur á grunnskólaballi! Þessi górilla sást á balli í langholtsskóla þar sem hún faldi sig í skúmaskoti en réðist svo að nokkrum ungum stúlkum sem að vísu voru nokkuð slegnar.
ballinu var slitið um tíuleytið vegna árásar þessarar illkvittnu og geðveiku górillu og að sögn Gulla húsvörðs var húsið rýmt á fimm mínútum. Gulli vill þakka lögreglu fyrir að hafa brugðist skjótt við útkallinu og verið komin rétt áður en górillan slapp. Að sögn lögreglu var górillan flutt í fangageymslu lögreglu meðan hún var yfirheyrð en henni var sleppt síðar um kvöldið vegna skorts á sönnunargögnum og játningu frá górillunni.
END OF LINE