Þeir sem lesa brandarana hérna hafa eflaust tekið eftir þeim vomlausu svörum sem oft birtast á þessu áhugamáli. Þaðmætti alveg sleppa því að svara “LOL” eða “ROFL!!!!!HAHAHA!”. Það er bara ekki þess virði að ýta 30 sinnum á lyklaborðið til þess að láta aðra vita að manni fannst þetta fyndið. Þetta er brandari og þá er búist við því að maður fari að hlæja. Hins vegar er allt ílagi að koma með eitthvað fyndið komment (eða niðurlægingu, ef brandarinn er annars flokks), það er allt annað. Persónulega les ég aldrei greinasvörin hérna. En það mætti alveg laga þetta. Ef að fólk myndi sleppa þessum algjörlega tilgangslausu svörum þá myndi áhugamálið batna til muna. Í sumum greinum fer þetta bara að nálgast spam þetta er svo leiðinlegt. Ef að þessi svör kæmu ekki þá gæti maður lesið það sem skiptir máli, merkilegu svörin. <br><br>Roggi - <A HREF="http://www.roggi.homestead.com/roggi.html">Besta Zelda síðan</A