Gargandi snilld þessi hérna:


Það var nýr prestur við sína fyrstu messu sem var svo hræddur að hann
gat varla komið upp orði. Eftir messuna spurði hann meðhjálparann
hvernig sér hafði gengið?
Hjálparmaðurinn sagði, ágætlega, en sagði að það gæti hjálpað honum með
næstu messu að setja smá vodka eða gin út í vatnsglasið sitt, gamli
presturinn hafði gert það til þess að slappa af.


Næsta sunnudag setti presturinn vodka í glasið sitt og það kjaftaði á
honum hver einasta tuska. Eftir messuna spurði hann hjálparmanninn
hvernig sér hafði gengið núna. Hjálparmaðurinn sagði aftur, ágætlega,
enn það væru nokkrar staðreyndir sem þeir ættu að fá á hreint:

1. Það eru tíu boðorð,ekki tólf.

2. Það eru tólf postular, ekki tíu.

3. Davíð vó Golíat, en buffaði hann ekki.

4. Við minnumst ekki á Jesús Krist sem Jonna heitin Ká.

5. Næsta sunnudag verður haldin karamellu köku keppni hjá
Sankti Péturskirkju en ekki Péturs kaffi kýling hjá Sankti
Karamellukirkju.

6. Faðirinn,sonurinn og hinn heilagi andi eru ekki nefndir Kallinn,
Lilli og Draugurinn.
beygla