Eitt sinn var 24 ára strákur sem var yfir sig ástfanginn af 22 ára stelpu sem hann var búinn að vera með í einn og hálfann mánuð.
Dag einn hringdi stelpan í hann og sagði að það væri kominn tími á að hann hitti foreldra hennar og sagði honum að þau færu í mat til þeirra kl 7 og færu svo heim til hans og gengu alla leið.
Hann fór að sjálfsögðu í apótekið að kaupa smokka, afgreiðslumaðurinn var mjög almennilegur og eiddi klukkutíma í að fræða hann um kynlíf og kynsjúkdóma.
Svo mætti hann um kvöldið og þegar allir voru ný sestir við borðið vildi hann fara með borðbæn þannig að allir lokuðu augunum og litu niður. 20 mínútur voru liðnar og þá sagði kærastann við hann: Ég vissi ekki að þú værir svona trúaður, þá sagði hann: Ég vissi ekki að pabbi þinn væri apótekari.