Jæja:

Ég pantaði heitt súkkulaði og þjónninn kom með eitt stykki af Síríus suðusúkkulaði
og eldspýtustokk.

_______________________


Þegar ég fæ mér kaffi panta ég alltaf kleinuhringi.
Þá get ég fylgst með því gegnum gatið að enginn steli frakkanum mínum.

___________________

,,Þjónn, hvað þarf ég eiginlega að gera til að geta fengið vatnsglas hérna?“
,,Reyndu að kveikja í þér.”


_______________


Tveir trúboðar í Afríku voru teknir höndum af mannætum. Þeir voru settir í stóran pott með heitu vatni og logaði risastórt bál undir. Fljótlega eftir að búið var að setja þá í pottinn fór annar trúboðinn að hlæja eins og vitleysingur. Hinn varð hissa og spurði. „Hvað er eiginlega að þér, það er verið að sjóða okkur lifandi, þeir ætla að éta okkur og þú hlærð eins og asni. Hvað er svona fyndið?“ Hinn trúboðinn sagði, „ég bara pissaði í súpuna þeirra.”

____________


Virðulegur maður kemur inn á barinn á Sögu og pantar fjögur glös af XO koníaki. Þjónninn afgreiðir manninn strax og raðar glösunum snyrtilega á barborðið. Maðurinn sturtar í sig úr hverju glasinu á eftir öðru og er búinn með alla sjússanna áður en 5 mínútur eru liðnar. Þjónninn segir í spurningartón: „það er eins og þér liggi á.“ „Þér myndi líka liggja á ef þú værir með það sama og ég,” sagði maðurinn. „Hvað ertu eiginlega með?“ spurði þjónninn í samúðartón. „Bara fimmtíu kall.”