NOKKUR DÆMI ÚR ÍSLENSKUM AUGLÝSINGUM ÞAR SEM MENN HAFA EKKI VANDAÐ SIG :

Sérstakur hádegisverðarmatseðill :
Kjúklingur eða Buff kr: 600
Kalkúnn kr: 550
Börn kr: 300.

Til sölu : Antik skrifborð, hentar vel dömum með
þykkar fætur og stórar skúffur.

Nú hefur þú tækifæri til að gata á þér eyrun og fá
extra par með þér heim.

Við eyðileggjum ekki fötin þín með óvönduðum vélum,
við gerum það varlega í höndunum.

Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.
Þetta hótel býður uppá bowling sali, tennisvelli,
þægileg rúm og aðra íþróttaaðstöðu.

Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir elska.
Brennir brauðið sjálfvirkt!

Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar,kvenmann,
til starfa.

Við byggjum upp líkama sem endist ævilangt!

Vantar mann til að vinna í dínamitverksmiðju.
Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.

Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja sig.
Komdu til okkar !

Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki
reykir né drekkur.

Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita
þér ókeypis aðstoð.