Einu sinni var ljóska í Elko og sá sjónvarp sem henni leist vel á. Hún
sagði við afgreiðslumanninn að hún vildi kaupa sjónvarpið. Þá sagði
afgreiðslumaðurinn að hann afgreiddi ekki ljóskur.
Jæja, ljóskan fór heim og litaði hárið svart. Hún kom svo aftur næsta
dag og bað afgreiðslumanninn um sjónvarpið. Aftur sagði hann að hann afgreidd
ekki ljóskur. Ljóskan skildi ekkert hvernig hann vissi að hún væri ekki
ljóska en fór heim rakaði af sér allt hárið og fór í Elko næsta dag. Þegar hún bað
um sjónvarpið sagði afgreiðslumaðurinn eins og áður að hann afgreiddi ekki
ljóskur. Nú stóð hún alveg á gati! Hún spurði afgreiðslumanninn hvernig
í ósköpunum hann gæti séð að hún væri ljóska, þar sem hún væri ekki með
neitt hár á höfðinu. Afgreiðslumaðurinn sagði henni þá að enginn nema ljóska
myndi halda að þessi örbylgjuofn væri sjónvarp.
—————-
Af hverju tvöfalda ljóskur ekki uppskriftir?
Vegna þess að ofninn kemst ekki hærra en 350°c
——————-
Voruð þið búin að heyra um Ljóshærða úlfinn?
Hann festist í gildru, og nagaði af sér 3 lappir og var samt fastur.
———————–
Hvað sagði hægri löppin á ljóskuni við vinstri löppina?
Ekkert þær hafa aldrei hist.
—————————
Afhverju spila ljóskur ekki frisbe?
Þær verkar svo í tennurnar þegar þær grípa hann.
——————————–
Lögga stoppaði ljóskuna sem ók á móti umferðinni á einstefnugötu.
Löggan: “Sástu ekki örvarnar?”
Ljóskan: “Ég sá ekki einu sinni Indjánana.”
————————————
Læknirinn: “Taktu þessar pillu þrisvar á dag.”
Ljóskan: “Hvernig get ég tekið sömu pilluna oftar en einusinni?”
——————————————-
Læknirinn: “Er hóstinn orðin betri?”
Ljóskan: “Já ég er búinn að æfa mig í alla nótt.”
———————————-

Hafiði heyrt um ljóshærða landkönnuðinn?
Hann tók með sér sanpappír, hann hélt að það væri kort af Sahara
eyðimörkinni
——————————–
Eruð þið búin að heyra um ljóskuna sem dó í þyrluslysinu?
Henni varð kalt þannig að hún slökkti á viftunni.
————————————-
Hver er munurinn á ljósku og 747 þotu?
Ekki allir hafa farið í 747 þotu.
————————————–
Hvað eiga ljóskur og slökkvi bílar sameiginlegt?
Bæði framleiða mikinn hávaða til að láta þig vita að þau séu að koma.
———————————————
Hvernig kemurðu einhentri ljósku niður úr tré?
Þú veifar til hennar.
———————————————
Hvernig athugarðu greindarvísitölu ljósku?
Með loft mæli.
———————————————

Hvað færðu ef þú blandar saman ljósku og górillu?
Það veit engin, það er bara takmörk fyrir því sem að górilla fæst til að
gera.
——————————————
Hvernig deyja heilasellur ljósku?
Einmanna…
———————————-