Áríðandi tilkynning!!
Ef þú færð tölvupóst sem byrjar á orðinu “HÆ” þá skaltu eyða honum án þess að lesa hann. Þetta er versti vírusinn sem gengið hefur tölva á milli.

Hann mun eyða öllu sem er á harða disknum þínum. OG EKKI NÓG ME ÞAÐ - þessi vírus stekkur á diskettur sem liggja nálægt tölvunni þinni í allt að 100 metra radíus.

Hann setur inn nýjar setningar í allan tölvupóst sem þú skrifar.

Hann bindur hnúta á allar leiðslur sem liggja úr tölvunni þinni og herðir allar skrúfurnar svo fast að þú nærð þeim aldrei úr.

Hann skítur út lykjaborðið svo að bókstafirnir sjást ekki lengur og setur fingraför á skjáinn (með smjör- og sultubragði).

Hann fiktar í ískápnum þínum svo að smjörið bráðnar og mjólkin súrnar.

Hann falsar peningaseðla á tölvunni þinni og setur þá í veskið þitt.

Hann drepur blómin í garðinum þínum.

Hann setur laxerolíu í hundamatinn svo að þú þarft að vaka í alla nótt til að hleypa hvutta út.

Hann sér til þess að ljósaperan á klósettinu springur og felur allar varaperurnar.

Hann breytir öllu efninu á videospólunum heima hjá þér og setur t.d. klámmyndir á teiknimyndaspólurnar. Sendir svo tölvupóst til lögregnunnar um að þú eigir fullt af barnaklámi. Hann drekkur allan bjórinn þinn og sér til þess að verða alltaf skítugir sokkar á stofuborðinu miðju í hvert sinn sem það koma gestir.

Hann setur ofninn á fullt og lokar köttinn inn í honum. Þessi vírus hellir sykri í bensíntankinn á bílnum þínum og rakar af þér augabrúnirnar.

Hann millifærir af reikningnum þínum í sjóð til styrktar stöðumælavörðum.

Hann minnkar annan skóinn þinn hægt og rólega þangað til að þú endar með því að detta og nefbrjóta þig. vírusinn gerir þig kossasjúka/-nn og passar að þú sturtir aldrei niður. Þetta eru bara lítil upptalning á skaðanum sem þessi vírus getur valdið en hann kemur að sjálfsögðu ekki sem viðhengi heldur sem venjulegur texti í tölvupósti.

Vírusvarnarnefnd.