Hér er sönn saga af atburði sem kom fyrir mig í dag og sannar það að ég er ljóska! Ég settist í bílinn og náði í símann sem ég var með á silent og hringdi í systur mína og sagði henni að ég væri að koma. Svo skellti ég á. Þá tók ég eftir því að síminn var silent og ákvað að hækka hringinguna. Þannig að ég fór í Ring Volume og hækkaði. Síminn spilar þá hringinguna með þeim styrk sem valinn er og þá hringdi akkúrat síminn, ég svaraði og sagði halló en ekkert heyrðist og ég sagði halló aftur og aftur en skildi ekkert í því af hverju það heyrðist ekkert. Síðan eftir meira en mínútu þar sem ekkert heyrðist skellti ég á og ætlaði að sjá hver hefði verið að hringja fattaði ég að ég hafði bara verið að hækka í hringingunni en síminn hefði ekkert hringt. Þá hló ég mikið og fólkið í bílunum við hliðina á mér á ljósunum glápti á mig eina inni í bílnum hlæjandi upp úr þurru. Ætli þetta hafi komið fyrir einhverja fleiri?

P.S. Ég er búin að eiga símann í meira en ár.