Ung og falleg kona sem var á leið heim úr verslunarferð í útlöndum spurði prestinn

sem sat við hliðina á henni í vélinni hvort hann gæti mögulega gert sér greiða.

Að sjálfsögðu barnið mitt sagði klerkurinn, hvað get ég gert fyrir þig? Sko, ég

keypti rándýra hárþurrku í útlöndum og ég er hrædd um að ég verði stoppuð í

tollinum sagði konan. Er nokkur leið að þú farir með hárblásarann í gegnum

tollinn. Þú gætir til að mynda geymt hann undir hempunni. Ég vil endilega

aðstoða þig vina mín, en ég mun hins vegar ekki ljúga fyrir þig sagði presturinn.

Eftir að vélin var lent og þau komu að tollinum fór presturinn á undan.

Tollvörður-inn stöðvaði prestinn og spurði hann hvort hann væri með eitthvað

sem gera þyrfti grein fyrir. Ég er ekki með neitt slíkt frá mitti og upp úr sagði

presturinn. Hvað ertu með neðan mittis? spurði tollvörðurinn. Þar er ég með

magnað tæki sem er hannað til að gagnast konum, en er enn sem komið er

ónotað. Tollvörðurinn fór að skellihlægja og hleypti honum í gegn.

.
Gefðu svöngum manni fisk að borða og það dugir honum í einn dag.