Ég veit ekki hvort þessi hafi komið hérna áður þar sem ég var að sjá þennan flokk fyrst núna, og finnst ég hafa misst af miklu.

en allavega, here goes.

Blindur maður labbar inná bar, hann ákveður að skella sér á barinn. Hann auðvitað hefur ekki hugmynd um að þetta er lesbíubar, og þegar hann er búinn að panta sér drykk segir hann hátt og snjallt “Hey barþjónn, ég luma á einum geðveikt fyndnum ljóskubrandara!”.
Allt stoppar, tónlistin slokknar og það hefði mátt heyra saumnál detta þegar barþjónninn segir “Ég er 3faldur norðurlandameistari í MMA, hægra meginn við þig er hún Stína, hún er að æfa sig fyrir Sterkasta kona heims og á góðan möguleika á því að ná langt þar og vinstra megin við þig er hún Júlía en hún er með betri kickboxerum í heimi. Og við erum allar með ljóst hár. Ertu ALVEG viss um að þú viljir segja þennan brandara hérna inni?”

Þá svarar blindi maðurinn
“Nei, ekki ef ég þarf að útskýra hann 3svar sinnum!”

hehe hef ekki sagt þennan lengi, þannig að hann á örugglega að vera aðeins betri :P
Mamma þín hvað??!?!!