Heyrði þennan nýlega:

Kona kemur inn í apótek og biður um arsenik.
Apótekarinn spyr: “Hvað ætlar þú að gera við það?”
Konan segir: “Ég ætla að eitra fyrir manninum mínum, þar sem hann er farinn að halda fram hjá mér!”
Apótekarinn segir: “Nei, ég get ekki selt þér arsenik til þess”.
Þá dregur konan upp mynd af eiginmanninum sínum í samförum við eiginkonu apótekarans.
Þá segir apótekarinn: “NÚ! Ég gerði mér ekki grein fyrir að þú værir með lyfseðil!”