Ég stal þessum enda er þessi svaka góður og ákvað að deila því hingað fyrir ykkur.



Einu sinni voru tvær nunnur á gangi í gegnum skóginn. Önnur þeirra gekk undir viðurnefninu systir stærðfræði(SS),en hin var kunn undir viðurnefninu systir rökrétt (SR) Það var farið að dimma og þær áttu ennþá langt eftir á áfangastað.

SS:Hefurðu veitt því athygli að síðustu 38 og hálfa mínútu hefur okkur verið veitt eftirför af einhverjum manni?Ég velti því fyrir mér hvað hann ætli sér.
SR:Það liggur ljóst fyrir að hann ætlar sér að gera okkur eitthvað.
SS:Almáttugur minn! Á þessum tímapunkti mun hann ná okkur innan 15 mínútna hið minnsta! Hvað getum við gert?
SR:Það eina rökrétta í stöðunni er auðvita að labba hraðar.

Stuttu síðar.

SS:Það er ekki að ganga upp.
SR:Auðvitað er það ekki að ganga upp. Maðurinn gerði það eina rökrétta í stöðunni.Hann fór líka að labba hraðar.
SS:Hvað eigum við þá að gera? Á þessari stundu mun hann ná okkur innan einnar mínútu.
SR:Það eina rökrétta í stöðunni fyrir okkur er að fara sitt í hvora áttina. Þú ferð þessa leið og ég tek hina leiðina.Þá getur hann ekki elt okkur báðar.

Því næst ákvað maðurinn að elta systur rökréttu. Systir stærðfræði komst á áfangastað heilu á höldnu en hafði áhyggjur af því hvernig systur rökréttu hefði reitt af. Eftir nokkra mæðu kemur systur rökrétt loks á áfangastað.

SS:Systir rökrétt! Guði sé lof að þú sért komin! Hvað gerðist?
SR: Þar sem maðurinn gat eðlilega ekki elt okkur báðar,þá valdi hann þann möguleika að elta mig.
SS:Já,já! En hvað gerðist svo?
SR: Nú ég reyndi að hlaupa eins hratt og ég gat,en þá fór hann einnig að hlaupa eins hratt og hann mögulega gat.
SS:Og?
SR:Það eina rökrétta gerðist á þessum tímapunkti.Hann náði mér.SS:Guð minn góður! OG HVAÐ GERÐIR ÞÚ??
SR:Það eina rökrétta sem ég gat gert og gerði….Ég lyfti pilsi mínu upp.
SS:Oh, vesalings systir! Hvað gerði maðurinn?
SR:Það eina rökrétta fyrir hann í stöðunni.Hann gyrti niður um sig.
SS:Æii,nei!! Hvað gerðist svo?
SR:Liggur það ekki í augum uppi,systir? Nunna með pilsið upp um sig hleypur hraðar en maður með buxurnar á hælunum. hahahahaheheheheheheehhahahaaa