Hjón voru á leið austur fyrir fjall. Á miðri Hellisheiði valt bíllinn og
karlinn lenti undir bílnum, töluvert slasaður. Bílinn hafði lent við
álfahól. Út úr hólnum kom álfur. Eitthvað hefur álfurinn vorkennt karlinum
svo hann sagðist gefa karli tvær óskir. Æ, ég vildi nú komast undan bílnum
heill heilsu, stundi karlinn. Ekkert mál, sagði álfurinn og undan komst
karlinn heill heilsu. Hver er hin óskin? spurði álfurinn. Ja, mikið vildi
ég geta pissað dýrindis kampavíni í hvert skipti sem ég þarf að pissa, sagði
karlinn. Ekkert mál, sagði álfurinn og hvarf á braut. Hjónin komust með
hjálp aftur í bæinn og þegar karlinn fór næst á klósettið heima hjá sér,
þá mundi hann eftir síðari óskinni svo hann hrópaði "Magga, Magga komdu með
glas. Síðan pissaði karlinn í glasið og fékk sér sopa. Jú, dýrindis
kampavín var í glasinu. Magga bað nú um að fá að smakka og rétti karlinn henni
glasið og fékk Magga sér sopa. Karlinn hélt síðan áfram að sötra þetta eðalvín og
var duglegur að bæta í glasið. Nú vildi Magga fá meira kampavín úr glasinu
að drekka en karlinn leit á hana yfir glasbarminn og sagði: Nei, Magga
mín,ef þig langar í meira þá drekkur þú af stút !!!!!!