Sælir.

Við erum hættir að taka við fleiri myndum í keppnina. Samtals komu inn 97 myndir, sem verður að teljast mjög gott! Við ætlum að hafa fjóra riðla, þar sem fyrstu þrír innihalda 25 myndir og sá síðasti 22. Síðan verða bestu þrjár (getur breyst, við ákveðum þetta þegar nær dregur) úr hverjum riðli valdar og verður þá lokakönnun. Hver könnun fær að vera í fimm daga (getur líka breyst).

Við byrjum á elstu myndunum og endum á nýjustu, þannig núna er ekkert annað að gera en að kjósa!

Kv,

Stjórnendur /humor.