þetta gerðist þegar ég var á leiðinni að veiða:

ég sat í bíl og afi minn var að keyra bróðir minn sat við hliðina á mér og pabbi var frammí með afa. Ég var að hlusta á æpodinn minn og þegar við vorum að beygja inná glerárgötu eru pabbi og afi að tala saman og bróðir minn að lesa símaskrána (lol :D) og þá kalla ég allt í einu sjáiði bílinn!!! (þá var ég að tala um sportbíl sem var hinum megin við götuna) þetta verður til þess að afi snarhemlar og bíllinn á eftir okkur nær að stoppa nokkrum sentimetrum frá okkur allir í sjokki nema ég skildi ekki neitt. Allir voru frekar pirraðir útí mig so ég þagði bara það sem eftir var ferðarinnar og hélt áfram að hlusta á æpodinn minn.

þeim fannst þetta ekkert fyndið þá en eftirá fannst mér þetta frekar fyndið so ég ákvað að deila þessu með ykkur :)