Ég, tvær vinkonur mínar og kærastarnir þeirra vorum að veiða niðri við bryggju þegar bíll kom á bryggjuna bara á rólegum rúnt. Maðurinn sem sat við stýrið fór að stara á okkur og í kjölfarið keyrði hann á ruslafötu.

Ruslafatan slapp ómeidd, en skildi eftir sig djúpa beyglu í bílnum.

Okkur fannst þetta skondið, en vorkenndum auðvitað aumingja manninum.