já herðu, ég verð að segja frá kettinum mínum, ég hef aldrei séð heimskari og fyndnari kött :')

hún heitir víst Skelfir :Æ afþvi að ég hélt fyrst að þetta væri strákur og ég gat ekki breytt nafninu, enn einu sinni. Hún étur… allt, hún bryður papriku skrúfur og sleikir svo Voga ídýfu og lepum kók með, fáranlegur köttur? :'D

Svo var ég ekkað að vökva garðinn og hun kom og ætlaði að veiða bununa, svo brá henni ógeðslega þegar þetta var vatn, en gleymdi þvi svo eftir 5 sekundur, og þetta hélt áfram þangað til hun var hundvot :')

svo var ég með háreyðingar krem á löppunum og var að fara í sturtu og hún byrjaði að reyna að sleikja af mér kremið og hnerraði svo stanslaust, ég ætlaði ekki að standa í lappirnar þetta var svo fyndið, hún er svo lítil að hun hoppaði í hvert sinn sem hun hnerraði,

Svo var ég að bursta tennurnar í gær og hun sat á klósett skálinniu og starði niður.. var að velta þessu öllu saman fyrir sér :') … svo tók ég ekkern pappír og henti oní klósettið, og hún byrjaði að teyga sig í hann og datt oní klósettið :''D