Eftir að hafa rannsakað þetta fáránlega lísform hef ég komist að þessari niðurstöðu, og sá sem mótmælir er hnakki.

Hnakkar eru afturkreistingur Homo Sapien sem hefur þróast með Homo Sapien Sapien. Sem á einhvern undraverðan hátt hafa lifað af án þess að verða neitt hæfara lífsform, og fjölga sér nú í grýð og erg.

Ef fleira en þrennt af þessu á við um þig, þá skaltu hafa áhyggjur og hitta heimilislækninn þinn.

1. Þú hefur strípur
2. Þú notar hálfa eða heila gel dós í hárið á þér
3. Þú gerir ekkert sjálfstætt og fylgir hjörðinni
4. Hópurinn sem þú ert í gangið í sömu “tísku” fötunum
5. Þú ferð reglulega í ljós
6. Þú notar brúnkukrem þess á milli sem þú ferð í ljós
7. Þú hlustar á techno, trans og rapp
8. Þú ert með undir 80 í IQ og ert montinn með það.
9. Þú hefur engann húmor og hlærð bara með hópnum
10. Þú ert metrosexual
11. Þú notar farða ( augnskugga eða litar á þér augnbrýrnar)


Hnakkamella er allt ofan talið, jafnvel enn heimskari,og meiri gelgja.

Nokkrar gagnlegar aðferðir til að losna við hnakka sem hafa hugsanlega villst í garðinn ykkar.

Leggið brúnkukrem á jörðina og þegar hnakkinn er kominn nógu nálægt fleygið neti yfir hann, og dragið út fyrir lóðarmörkin ef hann skildi ná að losa sig þá er hann löngu búinn að gleyma hvar hann var og engin hætta á að hann komi aftur.

Önnur hentug leið er að setja gel á rottugildru og þegar hann engist um sprautið á hann vatni þar til hann hleypur í burtu til að hlúa að sárum sínum.

Einnig virkar vel ef margir hnakkar eru samankomnir á sama stað að kveikja á techno/trans/rapp tónlist inn í herbergi, og þegar allir eru komnir inn loka hurðinni, þú þarft ekki einusinni að læsa, þeir einfaldlega vita ekki hvað er í gangi.

Vona að þetta hafi gagnast ykku
When the power of love overcomes the love of power the world will know peace