Hér er einn gamall og góður sem fann á einhverri síðu fyrir langa löngu en ég rakst á hann í tölvunni minni fyrir stuttu.

Jón bóndi í Útnára hafði aldrei verið giftur, en var í gær að fá til sín
eina Thælenska úr póstlistanum “Einn með Öllu”. Hann veit ekki alveg
hvernig
hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í póstlistann, en fyrir
slysni ruglast hann á símanúmerum og fær samband við tölvubúðina “Ein með
Öllu”. '

Heyrum nú hvað þeim fór á milli. Sölumaður (S) Jón bóndi (J)
RING RING

S “Ein með öllu” góðan daginn,

J Já, góðan daginn. Ég fékk hjá ykkkur “Eina” núna um daginn og
ég er í helvítis brasi með hana. Ég kann nú bara ekkert á hana. Ég held
að hún sé tælensk…..

Neiii…. Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega þá hlýtur
hún
að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?

J Hún heitir Hí un Dæ, held ég. Hún er allavega með merki framan á
sér sem á stendur. Hí un Dæ.

S Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með hana?

J Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað
í allan dag en ekkert gengið.

S Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?

J Já, hún stendur hérna alveg “nettó ”fyrir framan mig og ég
bara veit ekkert hvað ég á að gera næst.

S Mér finnst nú alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég
nota þær. Annars þreytist maður svo fljótt í bakinu.

J Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!

S Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin
heit.

J Ég er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg
víðast hvar…

S Hvernig týpa er þetta annars? 486?

J Tja- 6 og ekki 6…Það sem ég var með í huga var bara svona
venjulegt sex allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita hvað maður gerir
svona seinna meir…

J Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina, og
færa
hana rólega þangað til að “bendillinn” er kominn þangað sem þú vilt.

J Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á
meðan við erum að kynnast?

S Nei nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina
þannig að þú fáir það sem þú vilt.

J Jæja , það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af
hárum á músinni !

S Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga.
Hvernig er annars minnið í henni?

J Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í gær

S Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?

J Harðan. Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er
ég búinn að fá eitthvað til að setja hann í! !

S Hvað er hann stór“”?

J Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi! ! ! !

S O.K. gott, þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann.
Segðu mér annað, hvernig drif er á henni?

J Hvað meinar þú með drif??????

S Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drif…

J Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum

S Já, rifan er til þess að bæta í hana einu og öðru. Þú
stingur bara floppinum inn og svo er það bara “run” og “enter”.

J Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég geti
verið að hlaupa mikið en ENTER það get ég! ! !

S Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði
geymir allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún krassi á
þig !

J Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað þá
hugsun til enda.

S Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst.

J Það hlítur að vera ósköp sárt! ! ! ! !

S Enn hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota hana?

J Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég er
að kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað nytsamlegt.

S Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að gera að
nýta möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður getur.

J Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?

S Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar.

J Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð?
Hún Híun Dæ???

S Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega
þrælgóð. Þú þarft náttúruleg að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur bara með
hana niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu uppí! ! !

J Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið…..

S Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu.
Margir skipta á svona tveggja ára fresti…

J Heyrðu, ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég
tilbúinn til þess að hjóla í hana….

S Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég koma á
staðinn og hjálpa þé
www.bit.ly/1ehIm17