Okei, ég var einu sinni að vinna í bónus, og það var semsagt nýbúið að ráða nýjann verslunarstjóra. Ég hitti gæjann og hann heilsar mér með handabandi og spyr, hvað heitir þú?

-Bjarmi heiti ég.

-Ha, Bjarni?

-Oj? nei, Bjarmi.

-Já ok, Bjarni heiti ég.


Var með einhverja andúð á nafninu Bjarni, en þetta var hálf vandræðalegt.
Áttu njósnavél?