Þetta er gaaaaaaaaaaaamall brandari en samt góður, það eru líka til margar útgáfur af þessum brandara en þetta er útgáfan sem ég heyrði.

Pierce Brosnan, Mel Gibson og Arnold Schwarzanegger brotlenda á eyju einhverstaðar út í rassgati. Þeir eru teknir í fanga af mannætum og mannætu leiðtoginn segir að sá sem finnur besta ávöxtin í skóginum verður ekki drepinn. Þeir þrír fara inní skóginn að leita af ávöxtum til að gefa leiðtoganum og skömmu seinna kemur Mel Gibson aftur að leiðtoganum og sýnir honum að hann fann vínber. Leiðtoginn segir að hann skuli stinga því upp í rassinn sinn eða hann mun deyja. Hann gerir það og þeir hlæja sig allir máttlausa, þeir sleppa honum og þá kemur Pierce Brosnan aftur, og hann er með epli, þá fer hann í gegnum það sama og þeir hlæja og honum er sleppt, þá eru þeir Pierce og Mel að labba um í skóginum þegar Pierce Brosnan dettur niður úr hlátri og Mel Gibson segir “Hvað er svona fyndið?” Þá segir Pierce: “Ég sá hann Arnold fara aftur að bænum með vatnsmelónu!!!”