Já krakkar mínir það hlaut að koma að því að ég meiði einhvern á æfingu enda er ég ekki búinn að gera það í rúmar 2 vikur.

Já það var skemmtileg fögnuninn þar sem að ég náði að verja í leiðinni en þegar ég var búinn að verja þá náði ég að slá sóknarmaninn í magann , hann var í loftinu á bullandi siglingu og ég líka , en ég náði að slá hann í magan með upphandlegnum og síðan lá hann þarna í nokkurn tímann að reyna að ná andanum en á meðan var ég alveg heill.

En bíðið nú við ég náði double meiðslum sko , því seinna á markmanns æfingunni þá náði ég að lenda með sköflungnum á mér svona rétt undir öklann á vini mínum og hann snéri sig.

En undanfarna mánuði hefur einn annar vinur minn verið sá óheppnasti , ég hef meðal annars farið í hnéð á honum,öklan og magan og það ekki sjaldan en hann var heppinn í dag að lenda ekki á móti mér.

Takk fyrir mig.