Tek fram að ég fann þetta á netinu og ég bara varð að deila þessu hingað.





Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.







Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.







Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.





Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.





Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.





Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.





Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.





Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.



Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.





Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.





Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.





Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og jafnvel útá rasskinnar í leiðinni . Hér kæmi þvottapoki sér betur en skeinipappír.





Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.





Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en… úps, sparð. (þessa gerð vil ég kalla "frúk (þú ætlar að FReta en það kemur óvart kÚKur)





Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.



Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.





Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kosturinn er að þarf lítið að skeina)







Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.





Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.





Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa…


Bætt við 15. febrúar 2008 - 00:32
Hér er svo ein aðeins betri að lokum.

Einu sinni var maður sem hringdi í kærustu sína og sagði:“Ehhhhhh ég þarf að spurja þig að einu.
Kann ekki við það en verð samt.
Ég hef ekki fengið ”það“ svoldið lengi.
Mig dreymir um hvernig það rennur inn
hart og stíft og kemur út mjúkt og sleipt.
Ef þú vilt gera þetta fyrir mig það þarf
enginn að vita það.
Þér finnst ég eflaust dónaleg og frek en
ég get nú þegar fundið tungu mína leika
um það og sjúga úr því safann þar til
hann er næstum búinn !
Skal bara koma mér beint af efninu
- Má ég fá eitt tyggjó í láni hjá þér?” =)