Eldri hjón áttu í erfiðleikum í hjónasænginni, sá tími var kominn að manninum var hætt að geta risið hold. Sama hversu mikið hjónin reyndu, ekkert gerðist.
Dag einn þegar konan gat þetta bara ekki lengur hringdi hún til heimilislæknis síns og útskýrði fyrir honum hvað væri í gangi. Læknirinn hugsaði þetta aðeins og bað konuna að koma til sín daginn eftir og þá ætti hann að vera búinn að finna eitthvað handa þeim.
Daginn eftir mætti konan til læknisins eins og fyrr var ákveðið og fékk uppáskrifaðan lyfseðil fyrir Viagra. Hún fór og leysti lyfin út í hvelli og fór heim og gerði sig fína, full tilhlökkunar fyrir kvöldinu. Þegar maðurinn hennar var svo loksins búinn að vinna var hann svo yfirspenntur yfir þessu lyfi að hann hundsaði leiðbeiningarnar og tók inn megnið af dollunni.
Daginn eftir hringdi sonur hjónanna í lækninn alveg bandbrjálaður og spurði hvað læknirinn hefði eiginlega látið foreldra sína fá. Læknirinn kom algerlega af fjöllum og vissi ekkert hvað drengurinn var að tala um. "Júhh, það er nú bara þannig að mamma er dáin, systir mín er strokin að heiman, mér er fokk illt í rassgatinu og pabbi liggur á fjórum fótum hjá sófanum kallandi: Kis-kis come-come, kis-kis come-come.