Já, þannig er mál að vexti að ég var að spila WoW, og ég hafði gleymt að versla skot í byssuna mína. Þannig að, ég segi við systur mína, sem var að spila “gleymdi að kaupa sjit”. Þá hafði fingrasetningin aðeins runnið til þannig að ég skrifaði ji í stað ko, sem átti að verða skot, ekki sjit!