Komið þið sæl.

Nýlega var sett upp könnun þar sem ég spurðist fyrir um álit manna á áhugamálinu og ég verð að segja að ég er mjög ánægður með niðurstöðurnar. Af 29 notendum hafa 29 sagt að þeim líki vel við áhugamálið! Ég sé ekki fram á annað en að þetta muni haldast svona, en það vill svo merkilega til að kerfið tók ekki við möguleikanum Nei, sem segir okkur álit þess [kerfisins] á áhugamálinu.

Höldum flæði skemmtilegra og nýrra mynda stöðugu. Verið síðan góð við hvort annað og notist síður við blótsyrði.

Kv, Steini & Sora.