Hvernig ferðu að því að láta augu ljóskunnar ljóma?



Þú lýsir inn í annað eyrað á henni með vasaljósi.


————————————————————-



Drukkinn maður hringdi í lögregluna til þess að tilkynna að þjófar hefðu brotist inn í bílinn hans.

“Þeir hafa stolið mælaborðinu, stýrinu, bremsunni, kúplingunni og meira að segja bensíngjöfinni!” hrópaði hann.

Lögreglan var orðlaus og ákvað að senda mann á staðinn.

En áður en hann komst út úr dyrunum var hringt í annað sinn og sama röddin var í símanum:

“Ég afturkalla beiðnina,” sagði hann hikstandi, “ég hafði óvart sest í afturstætið.”