Bróðir minn hefur mér alltaf þótt alveg ógeðslega fyndinn. Svona náttúrulega. Hann lætur stundum eins og krakki þótt hann sé þrítugur.

Hann var að tala við stelpu á MSN og partur af samtalinu var svona:

Hann: ÉG ER AÐ HLUSTA Á GEEEEEEEÐVEIKT LAG!!!
Hún: Hvað!?!?
Hann: Aaaaggagagg sagði tófan á grjóti (8)

Síðan hljóp hann inn í stofu til mín og sagði að hann hefði sent mér eitthvað geðveikt fyndið á MSN. Ég kíkti og þar stóð:

“Meistari Jakob , meistari Jakob, sefur þú? sefur þú? Hvað slær klukkan?/Meistari Jakob. Hvað slær klukkan?/Meistari Jakob, meistari Jakob. Sefur þú?/Hún slær þrjú. Sefur þú?/Hún slær þrjú.”

Ég hló allavega. Haha.