Ég lenti í heldur betur asnalegu tilviki í gærkvöldi þegar ég var að vinna í símaverinu hjá Domino's Pizza. Ég var kominn með kúnna á síman og spyr svona “Hvað má bjóða þér?” og þá fer hann svolítið off-topic og spyr mig “Hey, getur nokkuð verið að þú heitir Hildur?” þá sagði ég “uu nei, ég heiti nú Eyþór” og hann bara svona skammaðist sín geðveikt og sagði mjög hikstandi “Hey, ég ætla að hringja aftur eftir smá ég veit ekki hvað fólkið ætlar að fá sér hérna.”

Svo ætla ég að bæta við minni frægustu setningu þegar ég mismæli mig vel :) “Má bjóða þér að fá sent frítt SMS þegar sendillinn fer inní ofninn?” :D