Ólétt kona og eiginmaður hennar mættu á læknastofuna til þess að láta athuga hvort að barnið væri í lagi. Læknirinn sagði þeim frá tilraun sem hann væri til í að prófa á parinu.
“Jú sjáið þið til, það er þannig að við erum búin að þróa aðferð til þess að færa sársaukann frá hríðunum úr konunni og yfir á barnsföðurinn.”
Þau samþykktu þetta og nokkrum mánuðum seinna var kominn tími til þess að barnið kæmi í heiminn.
Læknirinn byrjaði að setja 25 prósent af sársaukanum yfir á eiginmanninn.
“Þetta er skrítið, ég finn ekki fyrir neinu,”sagði hann undrandi
Læknirinn var mjög undrandi og ákvað að bæta aðeins við og setti 50 prósent af sársaukanum yfir á manninn.
“Ég finn ekki fyrir neinu ennþá,”sagði hann, ennþá meira undrandi en seinast.
Á þessu stigi ákvað læknirinn að færa allan sársaukann yfir á eiginmanninn og fæðingin gekk sársaukalaust fyrir sig, bæði fyrir konuna og manninn.
En … Þegar þau komu heim, þá fundu þau póstberann dauðann á tröppunum.
“One is glad to be of service.”