Fólk er eins skrýtið og það er margt.

Mamma var eitt sinn í miklum flýti að fara í hagkaup. Hún var greinilega í það miklum flýti að henni tókst að hlaupa á gler og fá risastóran skurð fyrir ofan hægra auga. Hún er ennþá með ör eftir saumana og það skrýtna er að glerið brotnaði ekki einu sinni. En núna kemur það versta. Hún var í svona miklum flýti því hún þurfti að gera innkaup fyrir GIFTINGUNA hennar og pabba :D

Svo þekki ég einn lítinn strák sem er svona 2-3 ára. Þannig er mál með vexti að hann var með mömmu sinni í Byko og allt í einu tekur hann uppá því að lemja í eina konu. Konan reiðist auðvitað og mamma hans biður hana afsökunar. Þegar konan er farin þá lítur strákurinn á mömmu sína og segir ''er hún farin?'' mamma hans játti því og þá segir hann ''hvernig var hún á litinn?''
So does your face!