Það hafa líklega margir heyrt þennan… en örugglega ekki allir. Síðan er þessi alltaf jafn góður.

Einu sinni voru tveir tómatar úti að labba, annar hét Lárus og hinn hét Jónas.
Lárus gekk fyrst yfir götuna og kallaði svo á Jónas. Jónas gekk, og þegar hann rétt var hálfnaður yfir götuna þá kom Nissan Sunny 92´bíll á fleygiferð, og keyrði yfir Jónas!

Jónas liggur niðri… og Lárus kallar á hann “HEY flýttu þér Jónas”

Jónas svarar ekki. Lárus kallar aftur “Hey, Jónas, ertu ekki að koma?”…

Jónas liggur… Lárus gengur að honum. Lárus tekur um púlsinn á Jónasi… Jónas er allur.

Þá kemur annar bíll, í þetta skiptið Hummer. Veður yfir Lárus, og Lárus liggur á götunni, særður.

Síðan kemur Nissan Micra 93´ sem keyrir beint á Lárus, Lárus er allur.

Síðan kemur Tómas tómatsósa og kallar á þá “Hver er tómatsósa núna?”